Mirra
Fræðslu- og rannsóknarsetur um málefni innflytjenda.
FRÆÐSLA – RANNSÓKNIR – RÁÐGJÖF
Fræðsla og rannsóknir á innflytjendamálum, fjölmenningu og rasima eru sérsvið Mirru. Fyrirtækið býður upp á fyrirlestra, námskeið og vinnusmiðjur fyrir fyrirtæki, félagasamtök og hið opinbera. Rannsóknir, greiningar og úttektir á innflytjendamálum eru líka stór þáttur í starfseminni og Mirra veitir einnig ráðgjöf til einstaklinga, fyrirtækja, stofnana og sveitarfélaga.
Fréttatengt efni – hugleiðingar
70 þúsund innflytjendur á Íslandi – nauðsyn á vitundarvakningu og menningarfærni meðal heimamanna
Blaðakona frá Mannlífi hafði samband við Mirru og vildi fá viðtal við framkvæmdastjórann Hallfríði Þórarinsdóttur, forvitnast um bakgrunn hennar, skyggnast inn í starf Mirru um innflytjendalandið Ísland og heyra hvaða áskoranir fylgdu breyttu samfélagi. Fyrirspurnin...
Um hlutverk og sérþekkingu
Mirra veitir almenna og sértæka fræðslu, sem lýtur að menningarlegum margbreytileika – margbreytileika stjórnun (e. diversity mangagement), fjölmenningu og þeim fjölþættum áskorunum sem honum fylgja fyrir íslenskan vinnumarkað og samfélag í heild. Fræðsla er veitt í formi námskeiða, vinnusmiðja og fyrirlestra og sniðin að þörfum viðskiptavina hvort heldur stjórnenda á vinnumarkaði eða almennra starfsmanna.
Mirra vinnur að rannsóknum, greiningum og úttektum á innflytjendum, farandstarfsfólki og margmenningu í íslensku samfélagi. Rannsóknir eru fjölþættar og byggja á blönduðum rannsóknaraðferðum – eigindlegum og megindlegum.
Mirra veitir fyrirtækjum, stofnunum og sveitarfélögum ráðgjöf varðandi úrlausnir og áætlanir, sem lúta að verkefnum og áskorunum, sem fylgja fjölmenningu og íslenskri margmenningu.
Mirra byggir starfsemi sína á áratugalangri reynslu á sviði fræðslu og rannsókna.
Vissir þú að:
- Hlutfall innflytjenda á íslenskum vinnumarkaði á þriðja ársfjórðungi 2023 nam: 23,0 %
- 1. janúar 2023, nam fyrsta og önnur kynslóð innflytjenda af heildarmannfjölda landsmanna: 20,2 %
- Hlutfall barna og unglinga (0-16 ára) af fyrstu og annari kynslóð innflytjenda var af heildarfjölda árið 2022: 13,5 %
- Hlutfall innflytjenda af íbúum á Suðurnesjum þann 1. janúar 2023 var tæplega: 31.3%
- Á höfuðborgarsvæðinu bjuggu tveir þriðju allra innflytjenda á Íslandi 1. jan. 2023 eða: 65%
- Þann 1. janúar 2023 var hlutfall kvenna af innflytjendum á Íslandi: 45%
- Hlutfall innflytjenda á Íslandi, sem fæddir eru í Póllandi var í upphafi árs 2023 tæplega: 29,5%
- Í janúar 2023 var hlutfall innflytjenda á aldrinum 20-55 ára af öllum innflytjendum: 74%