Mirra
Fræðslu- og rannsóknarsetur um málefni innflytjenda.
FRÆÐSLA – RANNSÓKNIR – RÁÐGJÖF
Fræðsla og rannsóknir á innflytjendamálum, fjölmenningu og rasima eru sérsvið Mirru. Fyrirtækið býður upp á fyrirlestra, námskeið og vinnusmiðjur fyrir fyrirtæki, félagasamtök og hið opinbera. Rannsóknir, greiningar og úttektir á innflytjendamálum eru líka stór þáttur í starfseminni og Mirra veitir einnig ráðgjöf til einstaklinga, fyrirtækja, stofnana og sveitarfélaga.
Fréttatengt efni – hugleiðingar

Nærri 40% atvinnulausra eru erlendir ríkisborgarar
Það ætti ekki að koma neinum á óvart að atvinnuleysi meðal erlendra ríkisborgara er margfalt hærra en meðal innfæddra. Innflytjendur hafa verið mjög fjölmennir í þeim atvinnugreinum sem stækkað hafa hvað örast á undangengum árum, ferðaþjónustunni og greinum henni...
Um hlutverk og sérþekkingu
Mirra veitir almenna og sértæka fræðslu, sem lýtur að menningarlegum margbreytileika – margbreytileika stjórnun (e. diversity mangagement), fjölmenningu og þeim fjölþættum áskorunum sem honum fylgja fyrir íslenskan vinnumarkað og samfélag í heild. Fræðsla er veitt í formi námskeiða, vinnusmiðja og fyrirlestra og sniðin að þörfum viðskiptavina hvort heldur stjórnenda á vinnumarkaði eða almennra starfsmanna.
Mirra vinnur að rannsóknum, greiningum og úttektum á innflytjendum, farandstarfsfólki og margmenningu í íslensku samfélagi. Rannsóknir eru fjölþættar og byggja á blönduðum rannsóknaraðferðum – eigindlegum og megindlegum.
Mirra veitir fyrirtækjum, stofnunum og sveitarfélögum ráðgjöf varðandi úrlausnir og áætlanir, sem lúta að verkefnum og áskorunum, sem fylgja fjölmenningu og íslenskri margmenningu.
Mirra byggir starfsemi sína á áratugalangri reynslu á sviði fræðslu og rannsókna.
Vissir þú að:
- Félagsmenn Eflingar stéttarfélags af erlendum uppruna árið 2020 eru: 53%
- Fjöldi innflytjenda 1. janúar 2020, fyrsta og önnur kynslóð var af heildarmannfjölda landsmanna, rétt um: 17 %
- Hlutfall barna og unglinga (0-16 ára) af fyrstu og annari kynslóð innflytjenda af heildarfjölda er: 10,5%
- Hlutfall innflytjenda af íbúum á Suðurnesjum þann 1. janúar 2020 var: 28%
- Fjölgun innflytjenda á Íslandi frá 2010 til 2020 var: 55%
- Á höfuðborgarsvæðinu bjuggu tæplega tveir þriðju allra innflytjenda á Íslandi 1.jan. 2020 eða: 64%
- Þann 1. janúar 2020 var hlutfall kvenna af innflytjendum á Íslandi: 45%
- Hlutfall Pólverja meðal innflytjenda á Íslandi var í upphafi árs 2020: 37%
- Í janúar 2020 var hlutfall innflytjenda á aldrinum 20-55 ára af öllum innflytjendum: 75%