Mirra
Fræðslu- og rannsóknarsetur um málefni innflytjenda.
FRÆÐSLA – RANNSÓKNIR – RÁÐGJÖF
Fræðsla og rannsóknir á innflytjendamálum, fjölmenningu og rasima eru sérsvið Mirru. Fyrirtækið býður upp á fyrirlestra, námskeið og vinnusmiðjur fyrir fyrirtæki, félagasamtök og hið opinbera. Rannsóknir, greiningar og úttektir á innflytjendamálum eru líka stór þáttur í starfseminni og Mirra veitir einnig ráðgjöf til einstaklinga, fyrirtækja, stofnana og sveitarfélaga.
Fréttatengt efni – hugleiðingar

Vinna með, vinna að, vinna gegn – innflytjendur, vinnumarkaður, samfélag
Á dögunum bað Rás 1 Mirru um að fjalla um 'vinnu' í stuttum pistli fyrir þátt, sem útvarpað er í hádegi og kallast Uppástand. Um er að ræða tiltekið þema, sem unnið er með í tíu þáttum í senn með jafnmörgum höfundum. Mirra fjallaði að sjálfsögðu um tengsl...
Um hlutverk og sérþekkingu
Mirra veitir almenna og sértæka fræðslu, sem lýtur að menningarlegum margbreytileika – margbreytileika stjórnun (e. diversity mangagement), fjölmenningu og þeim fjölþættum áskorunum sem honum fylgja fyrir íslenskan vinnumarkað og samfélag í heild. Fræðsla er veitt í formi námskeiða, vinnusmiðja og fyrirlestra og sniðin að þörfum viðskiptavina hvort heldur stjórnenda á vinnumarkaði eða almennra starfsmanna.
Mirra vinnur að rannsóknum, greiningum og úttektum á innflytjendum, farandstarfsfólki og margmenningu í íslensku samfélagi. Rannsóknir eru fjölþættar og byggja á blönduðum rannsóknaraðferðum – eigindlegum og megindlegum.
Mirra veitir fyrirtækjum, stofnunum og sveitarfélögum ráðgjöf varðandi úrlausnir og áætlanir, sem lúta að verkefnum og áskorunum, sem fylgja fjölmenningu og íslenskri margmenningu.
Mirra byggir starfsemi sína á áratugalangri reynslu á sviði fræðslu og rannsókna.
Vissir þú að:
- Félagsmenn Eflingar stéttarfélags af erlendum uppruna árið 2020 eru: 53%
- Fjöldi innflytjenda 1. janúar 2021, fyrsta og önnur kynslóð af heildarmannfjölda landsmanna rúmlega: 17 %
- Hlutfall barna og unglinga (0-16 ára) af fyrstu og annari kynslóð innflytjenda af heildarfjölda er: 10,5%
- Hlutfall innflytjenda af íbúum á Suðurnesjum þann 1. janúar 2021 var tæplega : 28%
- Fjölgun innflytjenda á Íslandi frá 2010 til 2021 var: 55%
- Á höfuðborgarsvæðinu bjuggu tæplega tveir þriðju allra innflytjenda á Íslandi 1. jan. 2021 eða: 64,7%
- Þann 1. janúar 2021 var hlutfall kvenna af innflytjendum á Íslandi: 45%
- Hlutfall Pólverja meðal innflytjenda á Íslandi var í upphafi árs 2021 tæplega: 36%
- Í janúar 2021 var hlutfall innflytjenda á aldrinum 20-55 ára af öllum innflytjendum: 82%