Þær gleðifréttir bárust í dag frá Félagsmálaráðuneytinu að Mirra hefði fengið rannsóknarstyrk úr Þróunarsjóði innflytjendamála. Í pósti frá ráðuneytinu segir:
Ráðherra hefur nú, að tillögu innflytjendaráðs, úthlutað styrkjum úr þróunarsjóði innflytjendamála vegna 2024. Alls bárust 56 umsóknir um styrk úr sjóðnum og hlutu 20 verkefni styrk. Hér með tilkynnist að rannsókn Mirru „Inngilding á vinnumarkaði, inngilding á vinnustað – áskoranir og árangur“ hefur hlotið 5.000.000 kr. styrk úr sjóðnum, sem jafnframt er hæsta styrkupphæðin sem veitt er í þessari úthlutun.”
Þetta eru heldur betur góðar fréttir fyrir Mirru og fyrir málefnið inngildingu, sem er ein af stóru áskorunum sem samfélagið stendur frammi fyrir. Í umsókninni var beðið um hnitmiðaða lýsingu á verkefninu, sem er svona:
Inngilding er lykilatriði í aðgerðum gegn margþættri mismunun í garð innflytjenda. Ferli inngildingar snýst ekki síst um að verða tekinn inn í samfélag heimamanna, fá rödd, fá áheyrn og ákvörðunarrétt um eigin hag. Vinnustaðurinn er slíkur vettvangur og afar mikilvægur – oft eini staðurinn þar sem innflytjandinn er í samskiptum við heimamenn. Inngilding gerist ekki nema með fullri þátttöku heimamanna því þeir eru hliðverðir inn í samfélagið, stefna vinnustaða skiptir hér sköpum.
Rýnt verður í þróun og praxís inngildingarstefnu tvennskonar vinnustaða þar sem bæði heimamenn og innflytjendur starfa í þjónustu þar sem samskipti við heimamenn eru mikil. Þetta eru hjúkrunarheimili og matvöruverslanir eitt af hvoru í sitt hvoru sveitarfélaginu.
Opinber stefna vinnustaðanna verður skoðuð í ljósi reynslu almenns starfsfólks og stjórnenda.
Gert er ráð fyrir að rannsóknin, sem verður s.k. viðtalsrannsókn, hefjist á vordögum og taki um 12-15 mánuði.
Mirra þakkar Félagsmálaráðuneytinu og Þróunarsjóði innflytjendamála kærlega fyrir og hlakkar til að takast á við verkefnið.