Mirra
fræðslu- og rannsóknarsetur um málefni innflytjenda.
FRÆÐSLA – RANNSÓKNIR – RÁÐGJÖF
Fræðsla og rannsóknir á innflytjendamálum og fjölmenningu eru sérsvið Mirru. Fyrirtækið býður upp á fyrirlestra, námskeið og vinnusmiðjur fyrir fyrirtæki, félagasamtök og hið opinbera. Rannsóknir, greiningar og úttektir á innflytjendamálum eru stór þáttur í starfseminni en einnig veitir Mirra ráðgjöf til einstaklinga, fyrirtækja, stofnana og sveitarfélaga.
Nýjasta fréttin
Mannamunur á íslenskum vinnumarkaði
Mirra vekur athygli á afar áhugaverðu málþingi, sem stéttarfélagið Efling, Starfsgreinasambandið (SGS) og Alþýðusamband Íslands (ASÍ) efna til og fjallar um stöðu erlends verkafólks á Íslandi. Málþingið er haldi dagana 23.-26. febrúar. Boðið verður upp á áhugaverða...
Um hlutverk og sérþekkingu
Mirra veitir almenna og sértæka fræðslu, sem lýtur að menningarlegum margbreytileika, fjölmenningu og þeim fjölþættum áskorunum sem honum fylgja fyrir íslenskan vinnumarkað og samfélag í heild. Fræðsla er veitt í formi námskeiða, vinnusmiðja og fyrirlestra og sniðin að þörfum viðskiptavina hvort heldur stjórnenda á vinnumarkaði eða almennra starfsmanna.
Mirra vinnur að rannsóknum, greiningum og úttektum á innflytjendum, farandstarfsfólki og margmenningu í íslensku samfélagi. Rannsóknir eru fjölþættar og byggja á blönduðum rannsóknaraðferðum – eigindlegum og megindlegum.
Mirra veitir fyrirtækjum, stofnunum og sveitarfélögum ráðgjöf varðandi úrlausnir og áætlanir, sem lúta að verkefnum og áskorunum, sem fylgja fjölmenningu og íslenskri margmenningu.
Mirra byggir starfsemi sína á áratugalangri reynslu á sviði fræðslu og rannsókna.
Vissir þú að:
- Félagsmenn Eflingar stéttarfélags af erlendum uppruna eru: 54%
- Fjöldi landsmanna sem eru innflytjendur 2018 eru: 14%
- Af öllum framteljendum á skattskrá 2017, voru erlendir ríkisborgarar: 8%
- Fjöldi íbúa í Reykjanesbæ af erlendum uppruna eru: 23%
- Fjölgun innflytjenda á Íslandi frá 2010 til 2018 var: 44%
- Á höfuðborgarsvæðinu búa tæplega tveir þriðju allra innflytjenda á Íslandi eða: 65%
- Konur meðal innflytjenda á Íslandi árið 2017 eru: 48%
- Hlutfall Pólverja meðal innflytjenda á Íslandi árið 2018 er: 40%
- Fyrsta kynslóð innflytenda 2017 á aldrinum 20-55 ára er: 80,5%