Um fimmta hver manneskja, sem býr á Íslandi rekur uppruna sinn út fyrir landsteinana eða um áttatíu þúsundum manns. Öðruvísi mér áður brá, kynni einhver að segja og rétt er það að fjölgun innflytjenda hefur verið mjög hröð. Á innan við þrjátíu árum hefur íslenska lýðveldið breyst úr einu einsleitasta þjóðríki sem um getur yfir í samfélag menningarlegrar margsleitni.
Er þetta eitthvað til að óttast?
Já, það er ákveðnir þættir sem vekja upp áleitnar spurningar en ekki endilega þeir, sem pólitískir leiðtogar og leikmenn nota til að kynda undir útlendingótta/andúð, líkt og borið hefur á undanfarið. Hvaða þættir eru þetta? Áður en því er svarað er rétt að fara yfir staðreyndir.
Hvaða fólk er þetta og af hverju er það að sækja hingað?
Að frádregnu flóttafólki, sem fengið hefur vernd – ríflega ellefu þúsund frá 2008 – kemur yfirgnæfandi meirihluti innflytjenda til landsins í atvinnuleit og þar af yfir 70% frá löndum innan hins sameiginlega vinnumarkaðar Evrópusambandsins, sem Ísland er aðili að. Fjölgun innflytjenda er því beintengd við efnahagsþenslur og þarfir atvinnulífsins, sem hafa nánast alfarið stýrt henni til að mæta miklum vinnuaflsskorti. Opinberar tölur sýna að atvinnuþáttaka innflytjenda er um 87%, – er 82% meðal innfæddra. Þorri innflytjenda er á vinnualdri – frá 20-5o ára og greiðir því skatta og skyldur. Enn sem komið eru gamalt fólk og börn hlutfallslega fá, sem þýðir m.a. minna álag á heilbrigðisþjónustu. Ef innflytjendur færu í verkfall myndi íslenskt samfélag fara á hliðina. Í ferðaþjónustu og skyldum greinum vinna þúsundir – atvinnugreininni sem færir þjóðarbúinu mestar gjaldeyristekjur – 448 milljarðar árið 2022. Ferðaþjónustan væri ekki svipur hjá sjón ef innflytjenda nyti ekki við. Aðrar þúsundir vinna í byggingavinnu og gatnagerð. Þrif á opinberum stofnunum og fyrirtækjum, umönnun á spítölum, leikskólum, hjúkrunarheimilum væri ógerleg án innflytjendanna sem þar vinna og svo mætti lengi telja.
Innflytjendur vinnuafl eða manneskjur sem vinna?
Sú staðreynd að fjölgun innflytjenda hefur fyrst og fremst miðað að því að mæta miklum ‚vinnuaflsskorti‘ er í sjálfu sér ámælisvert vegna þess að stjórnvöld gerðu í fæstum tilvikum viðhlýtandi ráðstafanir fyrir fólkið sem ráðið var í störfin, enda hraðinn svo mikill að mönnum sást ekki fyrir. Sú staðreynd að innflytjendur eru fyrst og fremst manneskjur varð undir í ofuráherslunni á ‚vinnuafl‘. Stefna yfirvalda í einkenndist af því að mæta ‚vinnuaflsþörf‘ vinnumarkaðarins. Minna fór fyrir að fólkið þyrfti húsnæði, hvað þá mannsæmandi. Minna fór fyrir skilningi á nauðsyn þess að veita þyrfti fjármagni í ýmis konar þjónustu, sem tillit tæki til sérþarfa þeirra og barnanna. Fjármagni, sem auðveldlega væri hægt að taka af þeim skattpeningum sem innflytjendur greiða. Vanvirðing við innflytjendur hefur því miður líka birst í því að meirihluti þeirra, sem verða fyrir launaþjófnaði og jafnvel mansali á vinnumarkaði koma úr þeirra röðum. Þetta eru lögbrot, sem yfirvöld hafa mestan part hunsað og leitt hjá sér. Af hverju skyldi það vera? Hvar er mannvirðingin? Yfirvöld, atvinnurekendur og almenningur þurfa öll að gera sitt í að opna dyr svo þekking og hæfileikar fólksins fái notið sín þeim og samfélaginu til góða. Það er beinlínis heimskulegt að loka á fólk vegna þess að það hefur skrítið nafn eða aðhyllist önnur trúarbrögð en fjöldinn.
Fjölbreytileikinn elur af sér út fyrir boxið hugsun og er ávísun á grósku. Inngilding – nýtt hugtak sem notað er í tengslum við margmenningu – felur í sér að meta fólk eftir mannkostum, en ekki útiloka það vegna uppruna, kyns, kynáttunar, trúarafstöðu eða annarra þátta.
Það eru sameiginlegir hagsmunir allra sem í landinu búa að hlú að framgangi innflytjenda í íslensku samfélagi. Það eru sameiginlegir hagsmunir allra landsmanna að virkja innflytjendur til félagslegrar þátttöku með öllum tiltækum ráðum. Það er eina leiðin að farsælum samskiptum í margmenningarlegu samfélagi.
Hluti úr þessum pistli birtist á visir.is 29.október 2024