Fjöldi kvenna af erlendum uppruna fer sífellt vaxandi á Íslandi en raddir þeirra eru þó enn sem komið er fremur hljóðar. Þann 8. mars n.k. á alþjóðlegum baráttudegi kvenna, munu nokkrar þessara radda fá að heyrast en það verður á viðburði, sem ber yfirskriftina „Voiceless“ eða „Án raddar“, sem tileinkaður er konum af erlendum uppruna, sem búsettar eru á Íslandi. Það er Ruth Adjaho Samuelsson, kona frá Ghana, sem hefur verið búsett á landinu í fjölda ára, sem á veg og vanda að viðburðinum. Ruth vinnur á sjúkrahúsi og hefur verið ötul í starfi Eflingar stéttarfélags og ASÍ og er vel upplýst um réttindi sín og skyldur á vinnumarkaði og í samfélaginu. Margar innflytjendkonur séu það hins vegar ekki, segir Ruth í samtali við Morgunblaðið.
Á málþinginu verður m.a. rætt um réttindi kvenna á Íslandi og hvort konur af erlendum uppruna viti af réttindum sínum. Eins hvort þær fái þá aðstoð sem þær eiga rétt á þegar miklar breytingar eiga sér stað í lífi þeirra. Fjallað verður um jafnrétti í menntamálum og spurt hvort tekið sé tillit til fólks af ólíkum uppruna. Eru réttindi kvenna af erlendum uppruna á vinnumarkaði þau sömu og innfæddar konur njóta á Íslandi? Hafa innflytjendakonur upplifað fordóma í sinn garð? Framsöguerindi verða flutt af innflytjendkonum sem og innfæddum konum.
Hér er viðtalið sem Morgunblaðið tók við Ruth Adjaho, og Elisabete Fortes, sem er frá Potúgal en hefur búið á Íslandi í fjölda ára. Elisabete er ein þeirra sem segir frá reynslu sinni á málþinginu.
Myndin að ofan er af Ruth Adjaho Samúelsson t.v. og Elisabete Fortes t.h. Ljósmyndari: mbl.is/Eggert Jóhannesson.