by Mirra | 12. Mar. 2021 | Fréttir
A brand new consultation center named “New in Iceland” was opened by the Minister of Social Affairs February 12. The aim of the center is to provide better and more targeted advice to immigrants as well as to provide more accessible advice, guidance and information for immigrants on essential services, their rights and obligations. The organization works in close cooperation with all the main state and city based institutions dealing with various aspects of immigration.
All services are free of charge and confidential and can be provided in eight different languages.
Joanna Marcinkowska is the Director of New Iceland.
by Mirra | 21. Jun. 2019 | Fréttir
Það var mikið gleðiefni fyrir Mirru að taka á móti veglegum styrk úr Jafnréttissjóði Íslands þann 19. júní s.l. Styrkurinn er veittur til rannsóknar, sem ber yfirskriftina: Kjör, lífskilyrði og staða innflytjendakvenna í láglaunastörfum á almennum og opinberum markaði. Að mati fagráðs, „fellur umsóknin vel að starfssviði sjóðsins, lýsing á markmiðum og þekkingu skýr. Nýnæmi verkefnis er mikið og felst í að beina sjónum að kjörum, lífsskilyrðum, stöðu og möguleikum innflytjendakvenna í samanburði við íslenskar konur sem starfa hlið við hlið.“ Dr. Hallfríður Þórarinsdóttir framkvæmdastjóri Mirru og Harpa Njáls félagsfræðingur og sérfræðingur í lífskjörum fátækra kvenna munu vinna rannsóknina. Áætlað er að rannsókn hefjist snemma á haustdögum.
by Mirra | 16. Apr. 2019 | Fréttir
Vöxturinn í ferðaþjónustunni hefði aldrei orðið að veruleika nema með vinnuframlagi innflytjenda, er meðal þess, sem kom fram í kynninu Hallfríðar Þórarinsdóttur, á rannsókninni Innflytjendur í ferðaþjónustu – drifkraftur vaxtar og hagsældar, sem fram fór í Þjóðminjasafni þann 11. apríl. s.l. af tilefni útkomu samnefndrar rannsóknarskýrslu. Höfundur greindi þar frá efnistökum rannsóknar og helstu niðurstöðum. Útgangspunktur rannsóknar var að kanna hvort og þá hvernig etnísk lagskipting (heimamenn/aðfluttir) á vinnumarkaði birtist innan ferðaþjónustunnar. Til að svara þeirri spurningu var hlutdeild innflytjenda í þremur undirgreinum ferðaþjónustunnar: hótelum, bílaleigum og rútufyrirtækjum, kortlögð. Rannsóknin leiddi í ljós ótvíræða etníska lagskiptingu, sem og kyn- og aldursskiptingu en þó mismikla innan þessara undirgreina. Rannsóknin leiddi ennfremur í ljós skort á heildarstefnu bæði í stærstu atvinnugrein landsmanna: ferðaþjónustunni og líka hvað viðkemur innflytjendum, sem í báðum tilvikum kemur ekki síst niður á innflytjendum. Rannsóknin, sem er um eitt hundrað síður að stærð, gefur glögga sýn á þann samhliða vöxt sem verið hefur í fjölgun innflytjenda og erlendra ferðamanna til landsins og vekur upp áleitnar spurningar um margskonar nýjar samfélagslegar áskoranir, sem óhjákvæmilega fylgja þessum miklu breytingum á íslenskum vinnumarkaði og samfélagi.
Í tilefni kynningarinnar, var rætt við höfund í fjölmiðlum m.a í sjónvarpsfréttum á RÚV og í Samfélaginu á Rás1, ásamt umfjöllun á mbl.is.
Hægt er að panta skýrsluna á: mirra@mirra.is
by Mirra | 8. Apr. 2019 | Fréttir
Í tilefni af útkomu rannsóknarskýrslunnar Innflytjendur í ferðaþjónstu – drifkraftur vaxtar og hagsældar, umbreytingar á íslenskum vinnumarkaði, boðar Mirra, til hádegisfundar í fyrirlestrarsal Þjóðminjasafnsins þann 11. apríl n.k. kl. 12- 13:16. Þar mun dr. Hallfríður Þórarinsdóttir kynna helstu niðurstöður samnefndrar rannsóknar sinnar.
Í rannsókninni var rýnt í hlutdeild innflytjenda í stærstu atvinnugrein landsins: ferðaþjónustunni þar sem starfsfólk á hótelum, rútufyrirtækjum/ferðaskrifstofum og bílaleigum var skoðað sérstaklega. Greint verður frá margbreytilegri samsetningu hópanna, sem til rannsóknar voru og þær niðurstöður skoðaðar í ljósi kenninga um etnískt lagskiptann vinnumarkað. Rannsóknarniðurstöður eru lýsandi dæmi um þær grundvallarbreytingar sem eru að verða á íslenskum vinnumarkaði með hraðvaxandi fjölgun innflytjenda. Breytingunum fylgja fjölmargar áskoranir – fyrir yfirvöld, aðila vinnumarkaðarins, ferðaþjónustuna og samfélagið í heild. Rannsóknin varpar ljósi á þessar áskoranir og vekur upp gagnrýnar spurningar þar að lútandi.
Dagskrá:
12:00 – 12:05 – Tatjana Latinovic, formaður Innflytjendaráðs ávarpar gesti.
12:05 – 12:45 – dr. Hallfríður Þórarinsdóttir kynnir helstu niðurstöður rannsóknar.
12:45 – 13:15 – Umræður og fyrirspurnir úr sal.
Kynningin fer fram í Þjóðminjasafni, fimmtudaginn 11. apríl kl. 12-13:15
Kynningin er öllum opin.